Kristínartindar Skaftafelli 220718
near Skaftafell, Austurland (Lýðveldið Ísland)
Viewed 431 times, downloaded 40 times
Trail photos
Itinerary description
Gengið frá tjaldstæðinu í Skaftafelli á slóða allan tímann sem er að mestu farinn af erlendum ferðamönnum. Mæli með að fara austan megin upp með Skaftafellsjökli, koma við á Sjónarnípu sem er magnaður útsýnisstaður og fara svo vestan megin niður með Morsárjökli og enda á slóðanum niður með Svartafossi.
Mun meira af fólki vestan megin (bakaleiðin) en á leið upp austan megin. Leiðin virðist brött og torsótt að sjá neðan úr skarðinu þegar komið er að tindunum en slóðinn er góður og öruggur, en fara þarf samt varlega og nota hendurnar við klöngur á köflum. Þessi síðasti kafli frá skarðinu upp á tind er ekki fyrir mjög lofthrædda en í krafti góðs hóps geta allir farið þarna upp og menn voru að "skokka" þarna upp og niður. Einfalt að sleppa bara tindinum ef menn vilja, en leiðin að honum upp í skarðið er á allra færi og algerlega þess virði að fara þetta, gjörsamlega kyngimögnuð leið og útsýni...
Einn áhrifamesti útsýnisstaður í okkar sögu ofan af Kristínartindum og gæti vel verið sá allra fegursti... erum ekki enn búin að finna hver skáka útsýninu þarna uppi því jöklarnir hafa þetta ekki eins með ísbreiðurnar sínar í nærumhverfinu...
Ferðasagan okkar í heild er hér:
http://www.fjallgongur.is/tindur159_kristinartindar_220718.htm

You can add a comment or review this trail
Comments